Svakalega lestrarkeppnin er lestrarátak fyrir krakka í 1. - 7. bekk um land allt.

Allir skólar geta tekið þátt og keppa um hver les mest á tímabilinu
15. september til 6. október 2026.

Markmið keppninnar er að auka lestraránægju barna.

Svakalega lestrarkeppnin er skemmtilegt lestrarátak fyrir krakka í 1. - 7. bekk í grunnskólum landsins.

Í keppninni skrá skólar niður hversu lengi nemendur lesa og senda inn tölur í lok keppninnar. Skólinn sem les í flestar mínútur sigrar keppnina og hreppir titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins ásamt því að fá glæsileg bókaverðlaun.

SKRÁNING HÉR.

Hvernig virkar keppnin?

Hverjir taka þátt? Krakkar í 1.-7. bekk um land allt.

Hvenær? 15. september - 6. október 2026. Úrslit eru tilkynnt 15.október.

Hvernig tekur skólinn þátt? Skólinn skráir sig til leiks með því að fylla út upplýsingar HÉR. Í hverjum skóla þarf að vera einn tengiliður sem sér um að senda tölur inn í lok keppninnar - í síðasta lagi 10.október - á sérstöku eyðublaði.

Hvaða lestur má skrá?
Í lestrarkeppninni má skrá:
- Allan yndislestur - bæði heima og í skólanum; skáldsögur, myndasögur, fræðibækur, myndabækur, hljóðbækur, ljóð.
Athugið að skrá aðeins virka hlustun á hljóðbókum, þ.e.a.s. skrá mínúturnar sem barnið er að hlusta og fylgjast með sögunni. (Ath. barnið þarf samt ekki að vera að fylgjast með textanum í bók á meðan hlustað er.)

- Lestur á öðru tungumáli en íslensku.
- Yndislestur foreldra fyrir barn í 1. bekk, þar sem mörg þeirra eru ekki byrjuð að lesa sjálf.

- Lestur kennara í nestistíma í skólanum. Þá fá allir nemendur sem hlusta að skrá mínútur.

- EKKI á að skrá lestur á námsbókum.

Hvernig vinnur skóli keppnina? Í lok keppninnar sendir tengiliður skólans inn heildarfjölda mínútna sem nemendur í 1. - 7. bekk hafa lesið. Við deilum mínútufjölda upp með heildarfjölda nemenda í 1. - 7. bekk til að minni skólar eigi jafn mikinn möguleika á að vinna og þeir stóru. Sá skóli vinnur sem hefur lesið í flestar mínútur að meðaltali.


Tengiliður þarf að senda inn tölur í síðasta lagi 10. október.
Úrslit eru kynnt 15. október.

Hvað er í verðlaun? Skólinn sem vinnur fær glæsileg bókaverðlaun, viðurkenningarskjal og titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins 2026.

Svakalega lestrarkeppnin er skemmtilegt lestrarátak fyrir krakka í 1. - 7. bekk í grunnskólum landsins.

Algengar spurningar

Má hlusta á hljóðbók? Já auðvitað! Hljóðbækur eru líka bækur.
ATH að aðeins má skrá virkan lestur á hljóðbókum. 

Má lesa teiknimyndasögur? Já heldur betur!

Má bara lesa í skólanum? Þú mátt lesa hvar sem. Mundu bara að skrá niður mínúturnar og láta kennarann þinn hafa upplýsingarnar.

Má skrá lestur kennara fyrir bekkinn í nestistíma? Já, það má skrá upplestur kennara í nestistíma. Það má skrá yndislestur - en ekki lestur á námsbókum og ekki hljóðbók sem spiluð er í nestistíma. Eftir lesturinn eru lesnar mínútur skráðar á þá nemendur sem hlusta. Markmið keppninnar er að auka lestraránægju barna og lestur kennara getur sannarlega aukið ánægju barna á lestri.

Má einn árgangur í skólanum taka þátt? Já, en þessi keppni er haldin til að fá sem flest börn til að lesa og leggja sitt af mörkum. Þess vegna er mínútufjölda alltaf deilt með heildarfjölda nemenda í 1. -7. bekk.

Þarf alltaf að vera keppni? Svarið er nei. Það þarf auðvitað ekki að vera keppni. En stundum er gott að hafa keppni til að hvetja sem flesta krakka til að gera eitthvað sem skiptir máli. Í Svakalegu lestrarkeppninni vinna allir nemendur saman að sama markmiðið - sem er að lesa sem mest!
Keppnin er samstarfsverkefni allra nemenda og þó að einhverjir nemendur eigi erfiðara með að lesa skiptir samt hver mínúta máli. Keppnin gæti því verið gott hópefli fyrir nemendur skólans. 

Er skráningin aukavinna fyrir foreldra og kennara? Í raun ekki. Öll börn eiga að lesa í 15 mínútur á dag samkvæmt þjóðarsáttmála um læsi. Allur lestrartími er skráður eins og vanalega. Skólar geta notað Læsisappið eða lestrarhefti og hægt er að fá lestrarkeppnishefti fyrir dagana sem keppnin stendur. Tengiliður tekur tölurnar saman í lok keppni og sendir inn.

Þurfa allir árgangar að taka þátt? Allir árgangar þurfa ekki að taka þátt en þegar úrslitin eru reiknuð deilum við mínútufjölda með ÖLLUM nemendum í 1. - 7. bekk. Af hverju gerum við þetta svona? Við viljum að öll börn eigi jafna möguleika á að taka þátt, ekki eingöngu þau sem lesa mest. Börn sem eru enn að læra að lesa og önnur sem eiga jafnvel erfitt með lestur skipta líka máli í keppninni. Lestrarkeppnin er tækifæri fyrir ÖLL börn að leggja sitt af mörkum og hver einasta mínúta skiptir máli.  

Hvað gerir tengiliður? Kennarar þurfa að leggja saman lestrartölur fyrir sinn bekk í lok keppni og senda á tengilið keppninnar í skólanum. Tengiliðurinn leggur saman allar tölur og fær sent eyðublað til að fylla út. 

Hvaða lestur má skrá í keppninni? Í keppninni má skrá allt sem flokkast undir heimalestur og yndislestur - en ekki lestur í kennslubókum. Það má skrá lestur foreldra fyrir barn í 1. bekk.

Má lesa á öðru tungumáli en íslensku? Já. Markmið lestrarkeppninnar er að auka lestraránægju barna. Ef nemendur eru með annað móðurmál en íslensku, mega þau lesa á öðru tungumáli en íslensku. 

Hvernig taka nemendur í 1. bekk þátt sem kunna ekki að lesa? Nemendur í 1. bekk, sem eru nýkomin í skólann og flest rétt að byrja að læra að lesa, taka þátt eftir getu. Að læra að lesa stafi flokkast líka sem lestur.
ATH að það má skrá lestur foreldra fyrir barn í 1. bekk.

Áfram lestur!

Barnabókarithöfundar eru með mikilvæg skilaboð til krakka um lestur

Hér er hægt að sækja ýmis gögn sem hægt er að nota í keppninni.

laesir.is

Þeir skólar sem nota Læsi til að halda utan um heimalestur geta nýtt forritið til að halda utan um keppnina á einfaldan hátt. Í Læsi er hægt að stofna lestrarsprett sem heldur utan um keppnina og reiknar sjálfkrafa út öll gögn sem þarf að skila í lok keppni. Á meðan á keppni stendur geta skólar fylgst með ýmiskonar áhugaverðri tölfræði um lestur sem getur gefið skemmtilega heildarmynd af keppninni .

Svakalega lestrarkeppnin 2025

Á síðasta ári tóku um 17.000 börn í 90 skólum þátt í Svakalegu lestrarkeppninni og lásu í samtals 9,7 milljón mínútur!

Melaskóli í Reykjavík sigraði lestrarkeppnina og hreppti titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins 2025!

Í öðru sæti var Grunnskóli Drangsness á Vestfjörðum og í þriðja sæti var Grunnskólinn Hofgarði á Suðurlandi.

Melaskóli í Reykjavík sigraði Svakalegu lestrarkeppnina 2025. Við heimsóttum skólann og spjölluðum við krakka og kennara um bækur og lestur!

Logi Einarsson, ráðherra.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðneytið

Svakalega lestrarkeppnin er fjármögnuð af
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og verður haldin 2026 - 2028.

Lestrarkeppnin er í samstarfi við:
List fyrir alla, Reykjavíkurborg og Læsi.

Reykjavíkurborg
Læsir er einfalt skráningarforrit fyrir heimalestur, laesir.is
List fyrir alla flytur listafólk í skólaheimsóknir um allt land Íslandi. listfyriralla.is