Svakalega sögusmiðjan er smiðja fyrir krakka á aldrinum
8 - 13 ára þar sem þau læra að hugsa skapandi og búa til sögur, bæði skrifa og teikna.
Smiðjurnar eru haldnar í bókasöfnum um land allt.
Í Svakalegu sögusmiðjunni læra krakkar fjölbreyttar leiðir til að búa til fyndnar, spennandi og ævintýralegar sögur.
Krakkarnir læra persónusköpun, að skapa sögusvið og byggja skemmtilegan söguþráð. Í smiðjunum vinna þau bæði einstaklingsverkefni og saman í hóp og unnið er að því að efla sjálfstraust þeirra með því að leyfa sköpunargleðinni að fá útrás.
Svakalega sögusmiðjan hefur bæði verið starfrækt sem klúbbur í Borgarbókasafninu og á Bókasafni Mosfellsbæjar og einnig sem styttri smiðjur víðsvegar um landið.
Barnamenningarsjóður og Bókasafnasjóður hafa styrkt við bakið á Svakalegu sögusmiðjunni.
Svakalega sögusmiðjan fékk Vorvinda IBBY árið 2023 fyrir framlag sitt til barnamenningar.
Viltu fá okkur í heimsókn? Sendur okkur póst á sogusmidjan@gmail.com
„Blær og Eva Rún eru einstakar í því sem þær eru að gera og vildi ég óska að þetta gæti verið í boði inni í skólum þar sem fleiri gætu fengið að upplifa svona skemmtilega leið til að lesa og koma hugmyndum sínum niður á blað.“
— Foreldri nemanda í Svakalegu sögusmiðjunni„Bæði eru fjölbreytt verkefnin til þess fallin að koma krökkunum á flug og svo tekst ykkur á einstakan hátt að skapa svo fallegt og nærandi umhverfi fyrir þau. Hjartans þakkir fyrir metnaðinn og ástríðuna.“
— Foreldri nemanda í Svakalegu sögusmiðjunni„Þetta námskeið opnaði nýjan heim fyrir hana og áhuga á að lesa bækur. Hún er alltaf að fá fleiri hugmyndir um hvað hún ætti nú að skrifa um næst.“
— Foreldri nemanda í Svakalegu sögusmiðjunni