Hvaðan koma hugmyndir? Er hægt að æfa ímyndunaraflið? Getur hver sem er búið til sögur?

Svakalegar sögur heimsækja skóla um land allt og tala um skapandi hugsun, sögur og lestur.

Svakalegar sögur er 50 mín atriði fyrir skólahópa þar sem fjallað er um hvernig hægt er að fá hugmyndir og búa til svakalega skemmtilegar sögur. Atriðið er gagnvirkur fyrirlestur, þar sem hópurinn býr til sögupersónu með okkur og semur um hana sögu.

Smiðjan hentar krökkum í 3.-6. bekk
(Getur líka gengið fyrir yngsta og elsta stig í grunnskóla, t.d. í minni skólum).

Í smiðjunni segjum við frá:

  • Hvernig krakkar geta hugsað skapandi og búið til svakalegar sögur.

  • Hvernig hægt er að fá hugmyndir hvar og hvenær sem er.

  • Af hverju það er mikilvægt að LESA BÆKUR til að búa til sögur.

  • Hvernig krakkar geta sent sínar eigin sögur inn í verkefnið Sögur og tekið þátt í Svakalegu lestrarkeppninni.

  • Segjum frá og sýnum eigin verk og verk í vinnslu.

Svakalegar sögur flakka um landið á vegum List fyrir alla - verkefni á vegum Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.

Viltu fá okkur í heimsókn? Sendu okkur póst á sogusmidjan@gmail.com