Blær og Eva Rún hafa unnið saman síðan árið 2019, búið til bækur, haldið smiðjur og fyrirlestra og tekið þátt í barnamenningarhátíðum um allt land. Þær hafa einnig gefið út Tímarit Svakalegu sögusmiðjunnar með sögum barna úr Sögusmiðjunni.


Eva Rún og Blær fengu Vorvindaviðurkenningu IBBY á Íslandi 2023, fyrir framlag sitt til barnamenningar með Svakalegu sögusmiðjunni. Svakalega sögusmiðjan hefur hlotið styrki frá Barnamenningarsjóði og Bókasafnasjóði. Svakalega lestrarkeppnin er fjármögnuð af Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

Eva Rún Þorgeirsdóttir er rithöfundur og skrifar bækur og handrit að sjónvarpsefni fyrir krakka. Hún hefur m.a. skrifað bækurnar um jólasveininn Stúf, fantasíurnar Skrímslin vakna og Hættuferð í Huldubyggð og einnig hljóðbókina Sögur fyrir svefninn á Storytel, sem hlaut Íslensku hljóðbókaverðlaunin 2022.
Eva Rún hefur einnig unnið sem handritshöfundur, framleiðandi og leikstjóri sjónvarpsþátta fyrir KrakkaRÚV. Eva Rún stýrði framleiðslu á Stundinni okkar í tvo vetur og vann Edduna 2021 fyrir besta Barna- og unglingaefni ársins.

Blær Guðmundsdóttir er teiknari, barnabókahöfundur og grafískur hönnuður. Hún hefur myndlýst barna- og skólabækur þ.á.m. bækurnar um Stúf, Holupotvoríur, Ég og sjálfsmyndin, Kærókeppnin og Orð eru ævintýri. Hún vann FÍT-verðlaunin 2020 fyrir sína fyrstu frumsömdu bók, Sipp, Sippsippanipp og Sippsippanippsippsúrumsipp – systurnar sem ætluðu sko ekki að giftast prinsum og hlaut einnig tilnefningu til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar í flokki myndlýstra bóka. Blær gaf út þrautabókina Leyndardómar Valþjófsstaðahurðarinnar í samvinnu við Þjóðminjasafnið vorið 2025 og hlaut einnig tilnefningu fyrir myndlýsingu ársins í Sögum verðlaunahátíð barnanna fyrir Stúf og björgunarleiðangurinn.

Hugmyndafræðin okkar

Við erum öll skapandi!

Við erum öll fær um að hugsa skapandi og fá hugmyndir. Það eina sem þarf er smá æfing
- og sjálfstraust!

Lestur er einfaldlega bestur!

Lestur hjálpar okkur að hugsa skapandi.
Til að búa til sögur þarf að lesa sögur.

Skapandi hugsun finnur lausnir!

Skapandi hugsun eflir okkur á öllum sviðum lífsins. Það er alveg sama hvað þú ætlar að gera í lífinu, skapandi hugsun hjálpar þér að finna lausnir.